• Sólmyrkvar

    Sólmyrkvar

    Sólmyrkvar eru magnaðasta sýning sem náttúran bíður upp á. Alger sirkus! En þeir eru ekki bara einstaklega fallegir, heldur hafa þeir hjálpað okkur að afhjúpa leyndardóma sólar, staðfest eina merkilegustu vísindakenningu sögunnar og leitt í ljós að sólarhringurinn á Jörðinni er að lengjast. Í bókinni eru merkilegar sögur af fólki sem lagði mikið á sig til að sjá tunglið hylja sólina og einnig útskýrt hvernig á að fylgjast með sólmyrkvum á öruggan hátt.

    SÓLMYRKVAR er skemmtileg bók og skorinort, stútfull af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Litmyndir Elíasar Rúna eru stórsniðugar og útskýra flókna hluti á skýran hátt. Hamfarir og Kúkur, piss og prump, úr sama bókaflokki, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
    Sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum 2026 fylgja með hverju eintaki en hér má líka kaupa þau stök! Þeim sem kaupa bókina býðst að kaupa auka gleraugu með 50% afslætti með því að nota kóðann solmyrkvi26.
    5.390 kr.
    Setja í körfu
  • Birtingur og símabannið mikla
  • Miklihvellur - Vísindalæsi #6

    Miklihvellur – Vísindalæsi #6

    Hvernig varð alheimurinn eiginlega til? Sennilega er þetta ein allra stærsta spurning vísindanna. Hér ferðast Stjörnu-Sævar um tíma og rúm, heimsækir misfurðulega fræðimenn og reynir með aðstoð töfratækja vísindanna (og óbilandi forvitni) að afhjúpa dýpstu leyndardóma alheimsins.

    Miklihvellur er stútfull af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Síðustu bækurnar í Vísindalæsisbókaflokknum, Hamfarir og Kúkur, piss og prump, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Teiknarinn Elías Rúni setur sem fyrr flókna hluti fram á skýran og skemmtilegan hátt.

    5.390 kr.
    Setja í körfu
  • Kúkur, piss og prump - Vísindalæsi #5

    Kúkur, piss og prump – Vísindalæsi #5

    Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Meltingin þín leikur nefnilega algjört lykilhlutverk þar. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara … spennandi! Það sem mestu máli skiptir er að vera forvitin og þora að spyrja spurninga.

    Kúkur, piss og prump  er léttlestrarbók úr hinum vinsæla Vísindalæsisflokki Sævars Helga Bragasonar. Hér úir og grúir af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Elías Rúni teiknar myndirnar í bókinni en hann hefur einstakt lag á að setja flókna hluti fram á skýran og skemmtilegan hátt.

    5.390 kr.
    Setja í körfu