• Geirmundar saga heljarskinns

    Geirmundar saga heljarskinns

    «Geirmundr heljarskinn sté nú til slíkra virðinga at svá er sagt at hverr maðr á Vestfjörðum vildi sitja eðr standa svá sem hann fyrir sagði.»

    Geirmundur heljarskinn var sagður göfgastur allra landnámsmanna á Íslandi. Þó hefur sögu hans aldrei verið haldið á lofti – fyrr en nú. Enda má segja að hann sé, þegar öllu er á botninn hvolft, 21. aldar maður, þótt hann hafi verið uppi fyrir 1100 árum. Bergsveinn Birgisson vakti mikla athygli í Noregi árið 2013 fyrir fræðirit sitt um Geirmund heljarskinn sem hann ritaði á norsku og nefndi Svarta víkinginn. Hér er hins vegar loks hægt að lesa stórbrotna sögu Geirmundar sjálfs. Og kominn tími til.

    Bergsveinn Birgisson hefur rannsakað sögu landnámsmannsins Geirmundar heljarskinns um árabil. Hann hefur leitað fanga víða, í fornum ritum, munnmælum og örnefnum, stuðst við fornleifarannsóknir, málfræði og erfðafræði. Hér er komin Íslendingasagan sem fékk ekki að vera með.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Orðspor

    Orðspor

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Takk fyrir að láta mig vita
  • Ru

    Ru

    Á frönsku þýðir orðið ru lítill lækur, eða í óeiginlegri merkingu eitthvað sem rennur á borð við tár eða blóð. Á víetnömsku þýðir orðið vögguvísa eða sú sem svæfir og huggar.

    Árið er 1968 og stríð geisar í Víetnam. Fjöldi fólks freistar þess að flýja land í von um betra líf. Þar á meðal er ellefu ára stúlka sem flýr yfirstéttarlíf í Saigon, með viðkomu í malasískum flóttamannabúðum, alla leið til Kanada. Þar verður hún bátaflóttamaður í smábæ og þarf að laga sig að nýjum lifnaðarháttum og nýju tungumáli.

    Inn í söguna fléttast örlög fleiri Víetnama, í Saigon og í Kanada, bæði á stríðs- og friðartímum.

    Höfundurinn, Kim Thúy, var líkt og sögupersóna verksins ein af „bátafólkinu“ svonefnda og er meðal frægustu höfunda Kanada í dag. Ru hefur verið þýdd á fjölda tungumála og unnið til margra verðlauna.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Eden

    Eden

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Formaður húsfélagsins

    Formaður húsfélagsins

    Maður flytur í blokkaríbúð systur sinnar á meðan hann kemur undir sig fótunum. Þetta átti að vera tímabundin ráðstöfun, en fyrr en varir er húsfélagið lent á hans herðum.

    Formaður húsfélagsins fjallar um samlíf ókunnugra, nauðsynlegt viðhald fasteigna og margslungið tilfinningalíf íbúa fjölbýlishúsa.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Svínshöfuð

    Svínshöfuð

    Af hverju fær eldri maður frá Breiðafirði viðurnefnið Svínshöfuð?

    Kínversk mæðgin koma til Íslands um miðjan tíunda áratuginn. Nýja fjölskyldan á sér gamlar sorgir, sársaukinn liggur kynslóða á milli. Eins og strengur.

    Sagan fléttast frá upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar með viðkomu á lítilli, breiðfirskri eyju, suðurhluta Kína. Og útverfi Kópavogs.

    Svínshöfuð er fyrsta skáldsaga höfundar, sem hlaut tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir ljóðabókina Flórída.

    1.290 kr.
    Setja í körfu