
Á eigin vegum
990 kr.Sigþrúður er ekkja og vinnur fyrir sér með blaðburði. Hún ræktar garðinn sinn, hugsar um kettina og sækir jarðarfarir. Hún er ein en ekki einmana; allt frá barnæsku hefur lífið kennt henni að treysta ekki á aðra. Fólkið hennar er horfið á braut og hún fylgir því í huganum en situr sjálf um kyrrt. Djúpt í sálinni búa þó draumar um annað líf, annað land. Geta draumarnir ræst?
Kristín Steinsdóttir hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sin og nafn hennar er þekkt langt út fyrir landsteinana. Á eigin vegum hefur fengið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.
„Það er alltaf gaman að láta koma sér á óvart… [Verk] sem… er svo miklu meira umfangs en útlitið gefur til kynna.”
– Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is„Kristin slær einhvern óútskýranlegan tón Og skilar af sér frábærri bók… sem skilur ekki við lesandann fyrr en löngu eftir að lestri lýkur.”
– Óttar Martin Norðfjörð, DV„Snertir við lesandanum á áhrifaríkan hátt… Hér er engu ofaukið og ekkert vantar.”
– Auður Aðalsteinsdóttir, Víðsjá RÚV
Hnattflug
1.490 kr.Systir mín átti upplýstan brott rafmagnaðangrip og það er trúlega
honum að kenna að ég hugsa mér stundum fimmþúsund vatta
peru inni í jarðkúlunni þá verður hafið gegnsætt fjallgarðar
logandi og örnefni vandlega letruð í litaðan svörðinn.Sá sem opnar þessa bók piggur boð um heimsreisu. Hvert ljóð er áfangastaður á ferð sem hefst á Íslandi en heldur áfram í austur allan hringinn. Stiklað er á lengdarbaugum frá einu kennileiti til annars og úrinu flýtt eftir atvikum.
Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd árið 1973 á Akranesi. Hún hefur vakið athygli fyrir frumlega texta, bæði skáldskap og pistla, en hún starfar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Ljóðabókin Blálogaland kom út árið 1999. Sigurbjörg hefur hlotið ýmiss konar viðurkenningar fyrir ljóð sín og sögur. Hnattflug hlaut viðurkenningu dómnefndar í samkeppni um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2000.
