• Speglahúsið

    Speglahúsið

    Miðaldra hárgreiðslukonan Rósa leggur skærin á hilluna, flytur austur í Mjóafjörð og kemur á fót óvenjulegri ferðaþjónustu. Meðan ferðamenn setja sig í spor Lísu, sem lá lömuð þar um miðja síðustu öld, bakar Rósa fyrir kaffihúsið og hugsar til ömmu sinnar sem sá um Lísu og heimilið.

    Mögnuð saga frá höfundi Hansdætra.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Dúkkuverksmiðjan (notuð)

    Dúkkuverksmiðjan (notuð)

    Stína og Grímur láta drauminn rætast og opna veitingastað í afskekktum firði fyrir vestan. Brátt er Dúkkuverksmiðjan orðin hjarta Salteyrar og það eina sem skyggir á gleðina er barnleysið. Þegar dóttirin langþráða loksins birtist reynir hún mjög á ástríka foreldrana, enda er stúlkan eins og lítill hvirfilbylur; eirðarlaus, uppátækjasöm og þjökuð af martröðum.

    Milla litla og Reynir besti vinur hennar vaxa úr grasi í öruggum faðmi þorpsins umkringd himinháum fjöllum og óblíðum náttúruöflum. Samband þeirra er afar náið en þegar þau stálpast kemst ástin í spilið og flækir málin svo um munar. En úr fjarlægð fylgist dularfullur maður með Millu og lúrir á leyndarmáli sem mun umturna öllu.

    Júlía Margrét Einarsdóttir er sögumaður af guðs náð, í senn smellin og einstaklega næm á mannfólkið í öllum sínum breyskleika. Í þessari þriðju skáldsögu sinni færir hún okkur heilt þorp – segir sögu íbúanna á hlýlegan og nostalgískan hátt án þess að gefa nokkurn afslátt af stóru spurningunum um ástina, lífið og dauðann.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Ferðalok

    Ferðalok

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Voðaverk í Vesturbænum

    Voðaverk í Vesturbænum

    Hver ræðst á dreng á grunnskólaaldri og skilur hann eftir illa meiddan í hjólageymslu fjölbýlishúss við Tómasarhaga? Svoleiðis ráðgátu er augljóslega ekki hægt að treysta lögreglunni einni til að leysa og hin nýstofnaða Vesturbæjarvakt, með Eddu í broddi fylkingar, tekur málið upp á sína arma. En fleiri þurfa á Eddu að halda. Stúlku í nágrenninu berast dularfullar sendingar og samband Viktors og Snorra er komið í háaloft. Það er því í nógu að snúast fyrir eiturhressan eftirlaunaþega.

    Voðaverk í Vesturbænum er sjötta bókin um Eddu á Birkimelnum og glímu hennar við flókin saka- og fjölskyldumál.

    Jónína Leósdóttir hefur skrifað tvær vinsælar glæpasagnaseríur, allt hörkuspennandi sögur sem kitla hláturtaugarnar og ríghalda frá upphafi til enda.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Maðurinn sem Ísland elskaði

    Maðurinn sem Ísland elskaði

    Paul Gaimard átti tvær heimsreisur að baki þegar hann kom eins og stormsveipur til Íslands sumrin 1835 og 1836. Hér stýrði hann mestu vísindaúttekt sem gerð hafði verið á þessari eyju sem fáir þekktu og lét teikna myndir sem gefa einstaka innsýn í lífið á Íslandi á þessum tíma. Gaimard vann hug og hjörtu landsmanna með því að læra íslensku og sýna þeim einlægan áhuga. En þrátt fyrir að hafa verið þekktur maður á sinni tíð eru bæði hann og leiðangrar hans að mestu gleymdir.

    Í Maðurinn sem Ísland elskaði er saga þessara stórmerku leiðangra rakin og jafnframt sagt frá ævintýralegu lífshlaupi á tímum mælinga heimsins. Byggt er á ýmsum gögnum sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir áður, þar á meðal dagbókum Gaimards, og dregin upp ljóslifandi mynd af fólki, stöðum og heimssögunni á fyrri hluta nítjándu aldar. Um eitt hundrað myndir prýða bókina.

    Árni Snævarr lærði sögu í Frakklandi og á Íslandi, stundaði blaðamennsku um árabil og hefur undanfarin ár unnið hjá alþjóðastofnunum og er nú búsettur í Brussel. Við vinnslu bókarinnar kannaði hann frönsk skjalasöfn og heimsótti helstu staði sem við sögu koma á Íslandi og í Frakklandi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Þykjustuleikarnir

    Þykjustuleikarnir

    Í Þykjustuleikunum, nýjustu ljóðabók Antons Helga Jónssonar er okkur boðið í sirkus þar sem fer fram samfelld dagskrá og alls konar persónur, misjafnlega kunnuglegar, eru kynntar  til leiks. Ólíkar raddir skiptast á, sumt er fyndið, sumt sorglegt og stundum lætur hryllingurinn á sér kræla. Þessi leikur með gervi og raddir endurspeglast að nokkru í útliti og uppsetningu þessarar nýstárlegu ljóðabókar.  Anton Helgi hefur lengi verið í hópi okkar allra vinsælustu skálda, tilfinningaríkur, orðsnjall og uppátækjasamur. Þykjustuleikarnir eru tíunda ljóðabók hans.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Kul

    Kul

    Una rambar á barmi kulnunar og er send vestur á firði í nýstofnað meðferðarúrræði, Kul. Þar dvelur lítill hópur fólks í þorpi við sjávarsíðuna í svartasta skammdeginu og glímir við það sem Hákon, forsprakki Kuls, segir mikilvægast: að horfast í augu við myrkrið innra með sér. Fyrir vestan fer fortíðin að sækja á Unu, minningar frá æskuárunum í litlu kjallaraíbúðinni með mömmu og Magga bróður.

    Þegar hrikta fer í stoðum meðferðarinnar, og ekki síður sjálfsmyndar Unu, tekur allt það sem hefur frosið fast innra með henni að losna úr læðingi og veruleikinn fer á flot.

    Kul er fyrsta skáldsaga Sunnu Dísar Másdóttur en áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Plómur sem var tilnefnd til Maístjörnunnar. Sunna er jafnframt ein Svikaskálda sem gefið hafa út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hún starfar ennfremur sem þýðandi, leiðbeinandi í ritlist og bókmenntagagnrýnandi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Við erum ekki morðingjar

    Við erum ekki morðingjar

    Ung kona skrifar bók sem leggur líf hennar og mannsins sem hún elskar í rúst. Ári seinna fær hún óvænt tækifæri til að segja frá sinni hlið á málinu. En hún hefur bara eina nótt. Og sá sem hlustar er ekki allur þar sem hann er séður. Við erum ekki morðingjar er spennuþrungin skáldsaga um ást, ofbeldi og viðkvæm leyndarmál.

    Dagur Hjartarson hlaut tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins fyrir fyrstu skáldsögu sína, Síðustu ástarjátninguna. Hér sendir hann frá sér bók sem veltir upp áleitnum spurningum og mun koma lesendum á óvart.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Stofuhiti

    Stofuhiti

    Stofuhiti er beitt og knýjandi krufning á samtímanum þar sem rýnt er í samfélagsmiðla, sítengingu, hryðju- verk, gagnaleka og margt annað sem hefur gríðarleg áhrif á sjálfsmynd okkar, hvort sem við áttum okkur á því eða ekki. Getur verið að þrátt fyrir upphafningu einstaklingsins sé hann að þurrkast út? Að þrátt fyrir síaukið upplýsingaflæði og gagnsæi stjórnist veröldin af dulmagni?

    Bergur Ebbi, skáld, pistlahöfundur og uppistandari, skrifar af snerpu og eldmóði um veruleika líðandi stundar – það sem á okkur brennur: Hver erum við og hvert ætlum við?

    Leggðu niður spilin áður en þú springur. Þú þarft ekki að springa. Sprengingar eru til þess að kveikja elda, en það logar nú þegar. Njóttu þess að brenna. Njóttu þess að brenna við stofuhita.

     

    990 kr.
    Setja í körfu