• Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans

    Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans

    Þetta er saga af nokkrum framsæknum nútíma Íslendingum sem lenda í ýmsum ævintýrum en bjargast úr hverjum háska með þjóðlegu hugviti og hreysti.

    Langt er síðan Guðbergur Bergsson skipaði sér í röð allra fremstu rithöfunda þjóðarinnar, og verk hans hafa notið mikillar hylli. Þessi bók er nýr sproti á þeim meiði. Persónurnar hafa ekki birst áður í bókum Guðbergs og stíllinn er nýr. Spurning er hvort skáldgáfa hans nýtur sín ekki einmitt best í þeim ærsla- og fjarstæðustíl sem hér er að finna.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Punktur punktur komma strik

    Punktur punktur komma strik

    Pétur Gunnarsson er fæddur í tvíburamerkinu 15. júní 1947. Hann byrjaði ungur að skrifa en ekki er að sjá að honum hafi farið mikið fram. Ljóðabókin „Splunkunýr dagur“ sem kom út 1973 var afleit. Hér birtir hann skáldsöguna „Punktur punktur komma strik“ sem hann hefur lesið úr með Listaskáldunum vondu og er eins víst að megninu sé stolið úr óvæntum áttum. Pétur reynir mikið að vera fyndinn og mest er það háð og grátt gaman um fólk sem hefur reynst honum vel og lýsir það innrætinu. Þó kastar tólfunum þegar höfundur byrjar að klæmast og eru oft áhöld um hvort hann sé með öllum mjalla, en þar sem virkilega er stungin tólg, bendir flest til að Pétur hafi prófað sóðaskapinn á sjálfum sér og sést af þessu hvernig maðurinn er.

    Gylfi Gíslason bogmaður, fæddur 19. desember 1940, myndskreytir bókina og er ljótt af honum að bæta þannig gráu ofan á svart.

    1.990 kr.
    Setja í körfu