
Skjáskot
990 kr.Skjáskot er magnað og upplýsandi ferðalag um mannshugann og áskoranir dagsins í dag. Man einhver eftir tvöþúsundvandanum, rotten.com eða Columbine-árásinni og skipta þessi atriði máli til að skilja nútímann? Hver eru tengslin milli falsfrétta og gervigreindar? Hvernig líður okkur í heimi þar sem allar skoðanir og hugsanir eru flokkaðar, fá einkunn og umsagnir? Hefur allt merkingu? Hræðist nútímafólk ekki lengur eld og tortímingu, heldur einmitt þá staðreynd að framvegis mun aldrei neitt gleymast eða eyðast?
Bergur Ebbi spyr stórra spurninga og leitar svara í þessari snörpu, skörpu og lærdómsríku krufningu á vandamálum og þversögnum sem blasa við okkur öllum. Fyrra leiðsögurit hans um nútímann, Stofuhiti, vakti mikla athygli.

Stofuhiti
990 kr.Stofuhiti er beitt og knýjandi krufning á samtímanum þar sem rýnt er í samfélagsmiðla, sítengingu, hryðju- verk, gagnaleka og margt annað sem hefur gríðarleg áhrif á sjálfsmynd okkar, hvort sem við áttum okkur á því eða ekki. Getur verið að þrátt fyrir upphafningu einstaklingsins sé hann að þurrkast út? Að þrátt fyrir síaukið upplýsingaflæði og gagnsæi stjórnist veröldin af dulmagni?
Bergur Ebbi, skáld, pistlahöfundur og uppistandari, skrifar af snerpu og eldmóði um veruleika líðandi stundar – það sem á okkur brennur: Hver erum við og hvert ætlum við?
Leggðu niður spilin áður en þú springur. Þú þarft ekki að springa. Sprengingar eru til þess að kveikja elda, en það logar nú þegar. Njóttu þess að brenna. Njóttu þess að brenna við stofuhita.
