

Krabbagangur
1.290 kr.Krabbagangur er umtalaðasta skáldsaga Günters Grass síðan Blikktromman kom út fyrir meira en fjörutíu árum. Sagan fjallar um mesta skipsskaða allra tíma þegar sovéskur kafbátur sökkti Wilhelm Gustloff í Eystrasalti að morgni 31. janúar 1945.






Nafnabókin
1.290 kr.Og þannig bar það til að hún varð virtasti tossi í Frakklandi.
Þegar Lucette varð ólétt var hún ákveðin í að barnið hennar fengi nafn sem hæfði stórkostlegri framtíð þess. Faðirinn hafði aðrar hugmyndir um nafngjöfina. Það varð þeirra beggja bani. Stúlka fæddist og fékk nafnið Plectrude og var komið í fóstur hjá móðursystur sinni.
Og Plectrude beið sannarlega glæst framtíð. Hún varð ballerína og önnur eins dansfegurð hafði ekki sést fyrr. En það er enginn dans á rósum að vera framúrskarandi ballerina.Amélie Nothomb er vinsælasti höfundur Frakklands um þessar mundir og eru bækur hennar þýddar á fjölmargar heimstungur. Áður hefur komið út eftir hana á íslensku bókin Undrun og skjálfti.
Guðrún Vilmundardóttir þýddi.

Sumarljós, og svo kemur nóttin
1.990 kr.Við ætlum ekki að segja frá öllu þorpinu, förum ekki hús úr húsi, en hér verður þó örugglega sagt frá girndinni sem hnýtir saman daga og nætur, frá einmana bónda og fjögur þúsund ára gamalli múmíu. Við segjum frá hversdagslegum atburðum, en líka þeim sem eru ofvaxnir skilningi okkar; menn hverfa, draumar breyta lífi. Og að sjálfsögðu ætlum við að segja þér frá nóttinni sem hangir yfir okkur, frá dögunum sem koma og fara, frá fuglasöng og síðasta andartakinu – þetta verða áreiðanlega margar sögur.
Jón Kalman Stefánsson hefur á undanförnum árum skapað persónulegan og seiðandi sagnaheim í röð tengdra skáldsagna og smásagna. Tvö þessara verka, Sumarið bakvið brekkuna og Ýmislegt um risafurur og tímann, voru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á sínum tíma. Jón Kalman heldur hér áfram að víkka út sagnaheim sinn, nú með þessu óvenjulega safni tengdra sagna og brota. Sögusviðið er smáþorp á Vesturlandi þar sem hver íbúinn á fætur öðrum reikar ráðþrota um villugjörn öngstræti hjartans.
