
Svar við bréfi Helgu
990 kr.Svar við bréfi Helgu er einhver vinsælasta skáldsaga síðustu ára. Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut auk þess bóksalaverðlaunin. Bókin kom fyrst út árið 2010 en hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála, sett á svið og nú síðast kvikmynduð.
Aldraður bóndi skrifar bréf til ástkonunnar sem honum bauðst að fylgja til borgarinnar forðum tíð. Gerði hann rétt í að taka sveitina fram yfir kærleikann? Fornar ástir renna saman við sagnir af gleymdum líkum, lágfættum hrútum sem liggja afvelta milli þúfna og því þegar Farmallinn kom.

Grænmetisætan
4.590 kr.Hin suður-kóreska Han Kang hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2024 fyrir ,,ákafan ljóðrænan prósa sem tekur á sögulegum áföllum og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins.“ Áður hafði hún meðal annars hlotið Man Booker-verðlaunin árið 2016 fyrir Grænmetisætuna sem farið hefur sigurför um heiminn.
Bókin kom fyrst út á íslensku árið 2017 og hlaut mikið lof. Meðal annars völdu bóksalar hana sem bestu þýddu skáldsögu ársins. Han Kang var gestur á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík sama ár. Grænmetisætan er endurútgefin í tilefni af Nóbelsverðlaununum.
Yeong-Hye og eiginmaður hennar lifa afar venjulegu lífi. Hann vinnur á skrifstofu en hún sinnir húsmóðurhlutverkinu af skyldu fremur en áhuga.
Dag einn ákveður hún að gerast grænmetisæta. ,,Mig var að dreyma,“ er eina skýringin sem hún gefur – í samfélagi þar sem það er bæði hneyksli og skammarlegt að borða ekki kjöt.
Ingunn Snædal þýddi.
