
Péturspostilla: Hugvekjur handa Íslendingum
990 kr.Dögum oftar er höfundurinn beðinn um álit, skoðun, ávarp, hugvekju, ræðu, grein eða erindi. Afstaða undirritaðs hefur jafnan verið á eina lund: að segja já – trúr því hugboði að hlutverk höfundarins sé að skipta sér af því sem honum kemur ekki við. Berhentur, umboðslaus, oftar en ekki ólaunaður, en sannfærður um að leitin að merkingu sé leiðin til að ljá lífi okkar merkingu.
Péturspostilla – hugvekjur handa Íslendingum geymir safn erinda og greina sem Pétur Gunnarsson hefur tekið saman í áranna rás. Hér er komið víða við, sjálfsagðir hlutir settir glænýtt samhengi og aðrir sem ekki hafa endilega verið efstir á baugi eru kynntir til sögu með minnisstæðum hætti. Útkoman er lík öðru sem komið hefur frá höfundinum full af húmor, frumlegri hugsun og föstum tökum þess sem kann að láta ‚hugvekju‘ rísa undir nafni og gildir þá einu hvort nærföt eru til umfjöllunar, samgöngumál eða staða íslenskrar tungu.

Auður
990 kr.Auður Ketilsdóttir flatnefs vex upp á Suðureyjum, ættstór og skapheit. Allt hennar fólk er heiðið en þegar hún kynnist Gilla munki laðast hún að boðskap hans um Hvítakrist. Hún er gefin Ólafi hvíta konungi í Dyflinni og fer til Írlands með honum. En þangað á hún líka annað erindi og leynilegt…
Vilborg Davíðsdóttir hefur gert líf á norðurslóðum á fyrri öldum að sérsviði sínu. Saga hennar um æskuár landnámskonunnar Auðar djúpúðgu var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og vakti mikla ánægju lesenda og gagnrýnenda.
„Vilborg bregður upp skýrri og grípandi mynd af persónum sínum og því lífi sem þær lifðu: Lesandinn finnur lyktina af þeim, heyrir raddir þeirra, sér þær ljóslifandi … Skemmtileg og innihaldsrík saga …“
– Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið„… yndisleg bók … þroskasaga Auðar djúpúðgu verður í meðförum Vilborgar bæði sterk og heillandi.“
Jenný Anna Baldursdóttir, bókabloggari„Þetta er saga sem kveikir áhuga á landnámskonunni Auði… skemmtileg og spennandi…“
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir / bokmenntir.is
Jón Leifs: Líf í tónum
1.290 kr.Tónskáldið Jón Leifs var einn merkasti og óvenjulegasti listamaður okkar á 20. öld. Í miðri heimsstyrjöldinni fyrri sigldi hann til Þýskalands, aðeins sautján ára gamall, staðráðinn í að leggja tónlistina fyrir sig þótt ekki hefði hann nema óljósan grun um hvað í því fælist. Hann kvæntist konu af gyðingaættum en bjó þó í Þýskalandi fram til ársins 1944, fluttist þá til Svíþjóðar þar sem ný ást og stór harmur biðu hans, og þaðan aftur heim til Íslands – í annars konar stríð og á vit enn nýrrar ástar.
Saga hans er saga manns sem var of stór fyrir Ísland þess tíma – stórbrotinn metnaður hans og bjargföst trú á heilaga köllun í tónlistinni varð honum bæði gæfa og ógæfa. Jón var um margt langt á undan sinni samtíð, varð fyrstur Íslendinga til að stjórna fullskipaðri sinfóníuhljómsveit, hljóðritaði íslensk þjóðlög þegar þau voru einskis metin, stofnaði STEF og samdi tónlist sem mörgum þótti óþolandi hávaði en er nú talin með því merkasta sem gert hefur verið í íslenskri tónlist fyrr og síðar.
Árni Heimir Ingólfsson skráir lífshlaup Jóns Leifs í þessari dramatísku ævisögu og hefur velt við hverjum steini í leit sinni að heimildum um líf hans. Bók hans er einstakur lykill að lífi þessa umdeilda listamanns. Fjölda áður óbirtra ljósmynda er að finna í bókinni.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009.

Krossfiskar
1.290 kr.Enn horfði ég á vatnið. Mér fannst ekkert eðlilegra en að vera þar sem ég var, einmitt núna. Ég sá að ævi mín var bara undanfari pessa augnabliks.
Daníel er hættur í háskólanum og hefur hvorki efni á mat né eldsneyti. Dag einn fær hann tvö símtöl, eitt frá fyrrverandi skólafélaga og annað frá lögreglunni, sem hrinda af stað dularfullri atburðarás.
Krossfiskar er spennuþrungin skáldsaga um átök sálarinnar – um mörk góðs og ills. vonar og vonleysis – frá einum af áhugaverðustu ungum höfundum þjóðarinnar.

Vígroði
1.290 kr.Auður djúpúðga elur upp son sinn á eigin jörð á Katanesi. Hún hefur haldið sig fjarri Suðureyjum frá því að leiðir hennar og Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs skildu af ótta við að Ketill flatnefur, faðir hennar, gefi hana manni á ný.
Að veturnóttum 865 kemur hún þó í föðurhús, til brúðkaups bróður síns og dóttur Ingólfs Arnarsonar. Þar spá dísirnar því að vígroða muni brátt slá á víkinga í Vesturhafi. Og víst horfir ófriðvænlega á norðanverðum Bretlandseyjum þar sem innfæddir veita norrænum mönnum æ meiri mótspyrnu og Orkneyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Dyflinnarkonungur inn í Péttland, öllum að óvörum, og leiðir þeirra Auðar liggja saman að nýju …
Vígroði er framhald af skáldsögunni Auður sem kom út 2009, naut geysilegra vinsælda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Gratíana
1.290 kr.Langþráð framhald Hansdætra. Leiftrandi örlaga- og þroskasaga ungrar konu sem tekst á við sjálfa sig og viðteknar venjur í byrjun tuttugustu aldar.
Þær framtíðarvonir sem Gratíana bar í brjósti sér eru að engu orðnar eftir þrjú ár í Bótarbugt en Evlalía móðir hennar er óbuguð enn. Með kænsku hreyfir hún við lífshjólinu og markar nýja stefnu, ekki aðeins fyrir sjálfa sig, heldur ekki síst Gratíönu og Ásdísi. Glóð kvenréttinda lifir í hjarta Gratíönu en samhliða kvikna aðrir logar sem hún brennir sig á, skilur ekki til fulls og veit ekki hvort hún vill glæða eða slökkva.

Missir
990 kr.Hvert leitar hugurinn þegar komið er á leiðarenda og fátt er framundan nema eilífið sjálf? Til liðinnar tíðar … sem geymir misfagrar minningar.
Ekkert rífur þögnina nema miskunnarlaust suðið í katlinum, hversdagslegur undirleikur við uppgjör einmana manns við tilveru sína, ástina eða ástleysið sem nær yfir mörk lífs og dauða – og ellina, það hlutskipti sem allra bíður þegar líkaminn hrörnar og þrekið þverr.
Guðbergur Bergsson veitir hér ögrandi og óvænta sýn inn í þá hversdagsheima sem allir þekkja en hver og einn fetar á sinn einstaka hátt. Missir er saga sem afhjúpar einstaklinginn gagnvart óhjákvæmilegum örlögum sínum.
Valin besta bók ársins 2010 af gagnrýnendum Morgunblaðsins, Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Árna Matthíassyni: „Guðbergur hefur hér meistaraleg tök á efninu og frásögninni allri. Missir er tvímælalaust eitt af hans áhrifameiri verkum, knappt og meitlað og vekur lesendann til umhugsunar.“

Tíu ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp
1.290 kr.Í skáldsögunni 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason (2008) fylgjumst við með ævintýrum króatíska leigumorðingjans Tomislav Bokšic, sem gengur undir nafninu Toxic.
Eftir nokkuð ‘farsælan’ feril sem leigumorðingi í Bandaríkjunum neyðist hann einn góðan veðurdag til að leggja á flótta og endar á Íslandi fyrir slysni. Þar taka kristnir trúboðar á móti honum fyrir misskilning og úr verða ýmsir menningar- og tungumálaárekstrar á meðan hann fótar sig í nýju umhverfi.
Hörkuspennandi og fyndin saga með þyngri undirtóni sem sýnir lesanda íslenskt samfélag frá býsna óvæntu og óvenjulegu sjónarhorni.

Doris deyr
1.290 kr.Með Doris deyr kveður Kristín Eiríksdóttir sér hljóðs á eftirminnilegan hátt og smeygir sér af lipurð milli heims og orða. Hér getur að líta manneskjur í allri sinni fegurð og grimmd sem elska, reiðast, harma og vita að mennskan er ekki einungis brothætt heldur líka ósigrandi!
Kristín Eiríksdóttir er í hópi okkar athyglisverðustu ungu höfunda. Sögurnar í þessu fyrsta smásagnasafni hennar eru skrifaðar af næmi og ímyndunarafli og eru í senn vægðarlausar og ríkar af samúð.

Vertu úlfur
990 kr.„Ég var hamrammur, maður í úlfsham, vargur, útlagi. Kraftar mínir voru kraftar úlfsins… Orðið vargur hefur enda tvöfalda merkingu: Úlfur og guðlaus maður. Eða einfaldlega útlagi. Wargus esto.“
Þessi bók geymir magnaða frásögn af ferðalagi manns inn í heim stjórnleysis, heim sem sumir þekkja, margir óttast en allir ættu að leitast við að skilja betur. Saga Héðins Unnsteinssonar er öðrum þræði sigursaga en líka saga um baráttu við fordóma, kerfið og jafnvel tungumálið sjálft. Hvað er annars að vera heilbrigður? Hvernig losnar maður við „sjúk-dóm”?
Vertu úlfur er einlæg, gagnrýnin og hispurslaus frásögn af falli og upprisu manns sem eitt sinn var greindur með geðhvörf.
Héðinn hefur starfað á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, auk þess sem hann hefur kennt, haldið fyrirlestra og skrifað fjölda greina um þessi mál.

Blóðug jörð
1.290 kr.Árið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. A augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum og ábyrg fyrir ungum sonarbörnum. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spyr eldi.
Á suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vigt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs.
Vilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um landnámskonuna Audi djúpúðgu með Blóðugri jörð, sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Vígroði, hlutu fádæma góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Múffa
1.990 kr.Áleitin og grípandi saga eftir snjallan höfund um fjölskyldubönd og vináttu, frelsi og hyldýpi – og það hvernig fólk kýs að lifa lífi sínu.
Alma er doktor í heimspeki og fyrrverandi háskólakennari en síðan þau Bjössi fluttu á æskuslóðir hans hefur hún kennt við grunnskólann í þorpinu og litað hárið á sér bleikt. Markús stjúpsonur hennar býr hjá þeim, þrjátíu og þriggja ára gamall og situr inni í herbergi í tölvunni dag og nótt. Pakki sem hann fær sendan í pósti einn daginn markar þáttaskil – fyrir þau öll.
Jónas Reynir Gunnarsson hefur vakið mikla athygli og hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir skáldsögur sínar og ljóð. Saga hans, Dauði skógar, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
