Availability: Á lager

Stríðsmenn Salamis

Höfundur: Javier Cercas
SKU: SKLD0STRI

1.290 kr.

Býsna ótrúleg saga, sagði hann svo með hlutlausum málrómi um leið og hann dró sígarettu upp úr hálfa pakkanum frá því um morguninn. En öll stríð eru full af ótrúlegum sögum, er það ekki?

Á síðustu dögum spænsku borgarastyrjaldarinnar stendur rithöfundurinn Sánchez Mazas ásamt fleiri föngum úr hópi falangista frammi fyrir aftökusveit lýðveldissinna. Um leið og vélbyssuskothríðin hefst notfærir hann sér ringulreiðina sem skapast og hleypur til skógar. Hermennirnir veita honum eftirför, einn þeirra finnur Mazas í felum, horfir í augu hans en gengur svo á braut.

Í Stríðsmönnum Salamis leitar spænski rithöfundurinn Javier Cercas svara við því hver óþekkti hermaðurinn var og hvers vegna hann þyrmdi lífi manns sem var alræmdasti hugmyndafræðingur falangista og átti eftir að verða ráðherra í fyrstu ríkisstjórn Francos. Mögnuð og margverðlaunuð bók um hlutskipti mannsins á tímum stríðsátaka, lyga og óvænts hetjuskapar.

Jón Hallur Stefánsson þýddi.

Á lager

SKU: SKLD0STRI Flokkar: , , Merki: ,

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2005

Þýðandi

Titill á frummáli

Soldados de Salamina

Blaðsíður

195

Form

Sveigjanleg kápa