Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1987 |
| Blaðsíður | 189 |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
Alda er glæsileg nútímakona, tungumálakennari við Menntaskólann í Reykjavík. Hún er af góðum ættum og býr einhleyp við ágætan efnahag á heimili sem hún hefur erft eftir foreldra sína. Líf hennar virðist í traustum skorðum, þar til ástir takast með henni og einum samkennara hennar. Samband þeirra gerbreytir lífi hennar og verður að lokum sá tímaþjófur sem ekkert fær við ráðið.
Til að lýsa þessu ástarsambandi beitir höfundurinn tungumáli og stíl á markvissan og sérstæðan hátt. Lesandinn er dreginn inn í hugarheim aðalpersónunnar og ljósi varpað á einsemd hennar og vanmátt gagnvart ástríðum sínum. Fínleg kaldhæðni höfundar setur ríkan svip á alla frásögn, og er hér samofin ljóðrænni tjáningu á djarfan og áhrifamikinn hátt.
Tímaþjófurinn sýnir nýja hlið á rithöfundinum Steinunni Sigurðardóttur og er tvímælalaust viðamesta verk hennar.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1987 |
| Blaðsíður | 189 |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |