Availability: Á lager

Allt í rugli!

SKU: BOKALLRUG

5.990 kr.

Sigrún er þrettán að verða fjórtán og búin að ákveða að hún sé hætt að vera lúði – sérstaklega nú þegar Aníta er flutt í götuna. En ef hún ætlar að verða vinkona Anítu verður ýmislegt að breytast í lífi hennar. Með hjálp nýju vinkonunnar ræðst hún í verkefnið með ófyrirséðum, og stundum bráðfyndnum, afleiðingum.

Barnalega æskuvinkonan verður að fjúka. Svo verður hún að gera eitthvað í þessari glötuðu fjölskyldu sinni. Af hverju er heimilið þeirra svona subbulegt? Ætti ekki að vera ólöglegt að setja hangikjöt og grænar baunir á pítsu? Og hver fer til Transylvaníu þegar hægt er að fara til Tenerife?

Hér er á ferðinni bráðfyndin og dramatísk saga um unglingsstúlku sem stendur á tímamótum. Yrsa Þöll Gylfadóttir hefur áður skrifað skemmtilegar og áleitnar bækur fyrir börn og fullorðna, meðal annars hinar geysivinsælu léttlestrarbækur Bekkurinn minn.

Á lager

SKU: BOKALLRUG Flokkar: , ,

Upplýsingar

Höfundur

Myndhöfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Innbundin