Availability: Á lager

Íslensku tröllabörnin

Höfundur: Brian Pilkington
SKU: FORISL

4.990 kr.

Tröll hafa byggt Ísland frá því löngu áður en menn settust hér að. Samt vitum við furðu lítið um þau enda hafa tröllin lært að oft er betra að láta lítið fyrir sér fara. Í þessari bráðskemmtilegu bók er hulunni svipt af lífsháttum tröllanna með sérstakri áherslu á litla tröllafólkið – sem er samt ekkert svo lítið! Hvernig alast tröllabörnin upp, hvað borða þau og af hverju sofa tröllabörn þegar þau eiga að vera að læra? Og hvað þykir þeim flott og hvernig tolla þau í tískunni? Eða hvað er eiginlega í gangi á milli trölla og hrafna? Loksins fáum við svör við þessum áleitnu spurningum og margt kemur á óvart.

Í þessari myndríku bók vekur Brian Pilkington magnaðan hulduheim til lífsins á sinn tröllskemmtilega og nýstárlega hátt. Þjóðsögurnar okkar eru notaðar sem bakgrunnur en miklu af nýjum og óvæntum upplýsingum bætt við. Og þar sem þeim sleppir tekur við óviðjafnanleg sköpunargleði og innsæi þessa ástsæla listamanns.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Þýðandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Innbundin