Availability: Á lager

Bjargvætturinn í grasinu

Höfundur: J. D. Salinger
SKU: SKLD0BJA2007

990 kr.

Bjargvætturinn í grasinu (The Catcher in the Rye) er löngu viðurkennd í hópi merkustu skáldsagna á þessari öld. Vel gefinn sextán ára piltur týnir áttum. Hann stingur af frá skóla og fjölskyldu og ráfar út í myrkvið New York borgar. Að bjarga öðrum í svipaðri aðstöðu er hið eina sem hann getur hugsað sér að leggja stund á – eða svo segir hann.

Sagan fjallar á óvæginn hátt um öfgar gelgjuskeiðsins, enda var hún umdeild í fyrstu. En fljótlega sáu lesendur að hér var hvorki ofsagt né vansagt.

Bókin er afar vandþýdd vegna unglingamáls og slanguryrða og er þýðing Flosa Ólafssonar á henni sannkallað þrekvirki.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2007

Útgáfa

2. prentun, 3. útgáfa

Þýðandi

Tungumál

Titill á frummáli

The Catcher in the Rye

Form

Kilja

Ástand

notuð