Availability: Á lager

Irpa

SKU: FORIRP

4.990 kr.

Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.

Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.

Hildur Knútsdóttir er einn virtasti ungmennabókahöfundur landsins en hún hefur einnig slegið í gegn með nóvellum sínum fyrir fullorðna, ekki síst í hinum enskumælandi heimi. The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024 og bókin hefur jafnframt verið tilnefnd til bæði Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að bæði þeirri bók og Irpu hefur auk þess verið seldur til erlendra framleiðslufyrirtækja.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Kilja