Availability: Uppselt

Baráttan um brauðið

Höfundur: Tryggvi Emilsson
SKU: SKLD0BAR-K

990 kr.

Fátæku fólki, fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verkamanns, var tekið með kostum og kynjum þegar það var endurútgefið árið 2010 og í Morgunblaðinu var fullyrt að bókin væri „ein merkasta og áhrifamesta ævisaga sem skrifuð var hér á landi á 20. öld“.

Baráttan um brauðið hefst árið 1920 þegar Tryggvi er sautján ára og fylgir honum í vinnumennsku, við búskaparhokur, gegnum illskeytta berkla og atvinnuleysi. Þegar íslensk alþýða rís upp gegn smánarkjörum sínum tekur Tryggvi þátt í þeirri baráttu af heilum hug. En aldrei gleymir hann því sem skipti hann mestu: ást á náttúrunni, kærleika til náungans og virðingu fyrir skáldskapnum.

Fátækt fólk og Baráttan um brauðið voru báðar tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2012

Blaðsíður

480

Form

Kilja

Ástand

notuð