Availability: Á lager

Ör

SKU: SKLD0OR-K

990 kr.

Jónas Ebeneser er 49 ára fráskilinn, valdalaus og gagnkynhneigður karlmaður sem hefur ekki haldið utan um bert kvenmannshold – alla vega ekki viljandi – í átta ár og fimm mánuði.

En hann er handlaginn. Hann hefur flísalagt sjö baðherbergi og þegar hann leggur af stað í ferðalag sem hann hefur ekki hugsað sér að snúa aftur úr, tekur hann með sér borvél.

Auður Ava Ólafsdóttir fjallar um stærstu spurningar mannsins, um lífið, dauðann og sjálfa ástina sem öllu skiptir, í sinni fimmtu skáldsögu. Auður Ava hefur skrifað skáldsögur, leikrit, ljóð og er textahöfundur popphljómsveitarinnar Milkywhale. Hún er margverðlaunuð fyrir skáldsögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2019

Form

Kilja

Blaðsíður

205

Ástand

notuð

Tungumál

Kápuhönnun