Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1972 |
| Tungumál | |
| Kápuhönnun | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.990 kr.
SKEGGRÆÐUR GEGNUM TÍÐINA geymir bráðskemmtileg samtöl Halldórs Laxness og Matthíasar Johannessens, sprottin af ýmsu tilefni á all-löngu tímabili. Matthías eykur enn við hróður sinn sem hinn ágætasti spyrjandi, viðtalsbækur hans við aðra listamenn bera af öllum slíkum verkum hérlendum. Í tilsvörum Halldórs leiftrar sem vænta má af fyndni, hnitmiðuðum skilgrein- ingum, skörpum glömpum, sem varpa ljósi á fjölmarga þætti á hinum langa, afar fjölbreytta listamannsferli, sem hann á sér að baki.
Þó að bók þessi sé mikið skemmtunarverk, er hún vissulega frá öðru sjónarmiði frábær heimild um hinn mikla höfund, sem hér talar, um viðhorf hans á ýmsum tímum, um einstök verk hans, um mörg þau djúpu spor, sem hann hefur skilið eftir í sögu og menningu landsmanna á meira en hálfri öld, um ferðir hans og langdvalir með öðrum þjóðum. Undir yfirborði óvæntra tilbrigða og andríkis eru sum tilsvörin ritgerðir í hnotskurn.
Teikningar af Halldóri eftir hinn danska listamann, Hans Bendix, eru afar skemmtilegt bókarskraut.
Ekki til á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1972 |
| Tungumál | |
| Kápuhönnun | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |