Availability: Á lager

Heiman eg fór

SKU: SKLD0HEIMAN

1.290 kr.

Heiman eg fór er eitt af æskuverkum Halldórs Laxness. Bókin er skrifuð árið 1924 en var gefin út árið 1952.

Halldór Laxness blandar hér saman frásögnum af æsku sinni og uppvexti og skáldskap. Höfundurinn er ungur og ferskur, sjálfslýsing hans opinská og einlæg. Hugur hans er fullur af stórbrotnum hugmyndum um hann sjálfan og lífið en um leið þjáist hann af nagandi efasemdum um allt.

Í Heiman eg fór kemur fram afstaða höfundar til þess hvað sé í frásögur færandi: „Það sem hefur komið fyrir sál mína er efni í bók.“ Og þetta viðhorf hefur meðal annars gert skáldskap Halldórs Laxness hjartfólginn íslensku þjóðinni.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1991

Útgáfa

3. útgáfa

Tungumál

Form

Innbundin

Ástand

notuð