Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1986 |
| Þýðandi | |
| Tungumál | |
| Kápuhönnun | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
2.990 kr.
Ný skáldsaga eftir kólumbíska Nóbelsverðlaunahafann Gabriel García Marquez, skáldsaga þeirrar gerðar sem lesandinn getur sökkt sér ofan í, og látið berast með straumi frásagnarinnar um leið og honum opnast nýir og hrífandi heimar.
Sagan gerist í litskrúðugri hafnarborg við Karíbahaf undir lok síðustu aldar og á fyrstu áratugum þessarar. Hún er einstæð ástarsaga um Florentino Aríza, mann sem bíður elskunnar sinnar í hálfa öld, svo gagntekinn verður hann á unga aldri af hinni ómótstæðilegu Fermínu Daza. Og meðan lesandinn bíður með honum, sífellt spenntari og vondaufari í senn, skemmtir Marquez honum með ótal frásögnum – af skákmanninum og útlaganum Jeremíah de Saint-Amour og kynblendingsstúlkunni, af Júvenal Úrbíno lækni og páfagauknum hans, af Kínverjanum sem vann bókmenntaverðlaun Gullorkideunnar, af baráttunni við kóleruna og mörgu fleiru – uns niðurstaða fæst í skipsferð með Karabíska fljótasiglingafélaginu eftir hinu mikla Magdalenufljóti.
um
Ástin á tímum kólerunnar kom út á spænsku á síðasta ári og hlaut afbragðsviðtökur. Guðbergur Bergsson hefur þýtt verkið.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1986 |
| Þýðandi | |
| Tungumál | |
| Kápuhönnun | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |