Availability: Uppselt

Leiðin í hundana

Höfundur: Erich Kästner
SKU: UGLLEID

4.390 kr.

Sögusvið þessarar einstöku skáldsögu er Berlín á árunum eftir að heimskreppan mikla skall á 1929 og áður en nasistar tóku völdin í Þýskalandi 1933. Rótlaust mannlífið markaðist af óðaverðbólgu, langvarandi atvinnuleysi og gjaldþrotum fyrirtækja og banka. Fólk lifði frá degi til dags og næturlífið var taumlaust.

Aðalpersóna sögunnar er Jakob Fabian, 32 ára málfræðidoktor sem vinnur við auglýsingagerð. Hann er móralisti en reynsla hans af mannlífinu í Berlín, hnignandi siðferði, ístöðuleysi fólks, pólitískum átökum og brostnum vonum, verður til þess að háleitar hugmyndir hans um mannfólkið bíða skipbrot.

Öllu þessu lýsir höfundur með meinfyndnum hætti.

Leiðin í hundana er jafnað talið meistaraverk Erichs Kästner og eitt af höfuðverkum þýskra bókmennta á tuttugustu öld.

Elísa Björg Þorsteinsdóttir íslenskaði.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2024

Þýðandi

Form

Kilja