Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2024 |
| Þýðandi | |
| Form | Kilja |

3.990 kr.
Þessi ltila en innihaldsríka bók geymir tvær ritgerðir eftir Milan Kundera sem mikla athygli hafa vakið.
Annars vegar er það ritgerð frá 1984, „Vesturlönd gíslingu eða harmleikur Mið-Evrópu“, sem fjallar um eðlismuninn á rússneskri og miðevrópskri menningu og sögu, efni sem á brýnt erindi til samtímans enda mjög mikið fjallað um og vitnað í þessa ritgerð í fjölmiðlum víða um heim undanfarin ár, einkum eftir innrás Rússa í Úkraínu.
Hins vegar er það söguleg ræða Kundera frá árinu 1967, „Smáþjóðir og bókmenntir“, sem afar auðvelt er að heimfæra upp á íslenska menningu og þjóðarvitund.
Gildi þessara texta felst ekki aðeins í því hversu sannfærandi Kundera er heldur í persónulegri og skarpri sýn höfundarins á efnið sem staðfestir enn og aftur að hann er einn merkasti rithöfundur Evrópu.
Friðrik Rafnsson íslenskaði.
Ekki til á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2024 |
| Þýðandi | |
| Form | Kilja |