Availability: Uppselt

Biblía Dorés

Höfundur: Torgny Lindgren
SKU: UGLBIB

4.390 kr.

Nafnlaus sögumaður tekur að sér að segja sögu Gustave Dorés (1832–1883), eins þekktasta bókaskreytis nítjándu aldar. Sagan af Doré verður hins vegar saga hins nafnlausa öryrkja sem hefur skapað veröld sína með stuðningi úr biblíumyndum Dorés en af ævi listamannsins segir fátt.

Aðalpersóna sögunnar er hreint ekki eins og fólk er flest, hvorki læs né skrifandi, en skaparinn hefur lagt honum líkn með þraut, gefið honum eiginleika sem gera hvort tveggja í senn að skapa honum yfirburði og gera honum kleift að taka hverju því sem að höndum ber.

Skopskyggnin bregst ekki Torgny Lindgren en um leið brýnir hann orðalaust fyrir lesanda sínum að leyfa sér ekki einfaldar skýringar á manneðlinu.

Heimir Pálsson íslenskaði.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2024

Þýðandi

Form

Kilja