Availability: Uppselt

Dalalíf III – Tæpar leiðir

SKU: SKLD0DALIII17

1.290 kr.

„„Upp koma augu, þá ann kona manni,“ segir máltækið. Og máltækin segja alltaf satt.“

Glæsimennið Jón á Nautaflötum er ekki einnar konu maður og heldur áfram að heilla kvenfólkið í Hrútadal upp úr skónum þrátt fyrir slark sitt og spilamennsku. Þegar Lína, vinnukonan unga, fellur fyrir honum gleymist allt og allir – líka trygglyndi vinnumaðurinn Þórður sem hún er trúlofuð.

Guðrún frá Lundi skrifaði sagnabálkinn Dalalíf um miðja síðustu öld og þar er sagt frá sveitalífi liðinnar tíðar. Bækurnar höfða enn til lesenda, enda kunni Guðrún flestum betur að skrifa skemmtilegar og áhugaverðar sögur af hversdagslífi og dramatískum atburðum.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2016

Form

Kilja

Ástand

notuð