Availability: Uppselt

Við hinir einkennisklæddu

Höfundur: Bragi Ólafsson
SKU: SKLD0VIDHIN

1.290 kr.

Í þeim skýrslum sem hér birtast opinberar höfundur sýn sína á fortíðina og nútíðina, þær stundir sem hann telur sig hafa lifað og þær víddir sem hann lifir í augnablikinu. Hann segir frá viðburðum úr eigin lífi en einnig atburðum sem ekki er víst að hafi átt sér stað fyrr en þeir voru skráðir.

Hinn afturgengni lögreglumaður; Arnolfinihjónin; manneskjan í unglingaherbergi höfundar; Íslendingurinn við vaskinn og andkristur – enga af þessum fígúrum hafði höfundur hitt áður en þær dúkkuðu upp hér. Sú persóna sem mest fer fyrir í textum bókarinnar er þó fyrsta persóna höfundar, þótt hún bregði sér í ólíka búninga og birtist í mismunandi gervum.

Við hinir einkennisklæddu birtir skáldskaparfræði höfundar og veruleikaskynjun; bókin er eins konar póetískt testamenti.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2003

Kápuhönnun

Blaðsíður

144

Form

Sveigjanleg kápa

Ástand

notuð