Availability: Á lager

Milli trjánna

Höfundur: Gyrðir Elíasson
SKU: SKLD0MILL-K11

990 kr.

MILLI TRJÁNNA er safn 47 smásagna sem einkenn- ast allar af þeim áreynslulausa og myndríka stíl sem prýðir verk Gyrðis Elíassonar. Þá kallast umfjöllunarefni þessa safns á við fyrri sögur höfundar. Hér bregður fyrir líkt og áður ýmiskonar óhugnaði og furðum, einsemd, draumum, ferðalögum, bernskuminningum og framtíðarsýnum, auk þeirr- ar ísmeygilegu fyndni sem lesendur þekkja úr fyrri verkum.

MILLI TRJÁNNA undirstrikar þó jafnframt þá markvissu þróun sem orðið hefur í sagnaveröld Gyrðis í átt til eindregnari efnistaka, um leið og við erum minnt á grunngildi tilveru okkar í þessum fjöl- breyttu en þó heildstæðu smásögum.

Fyrir þessa bók hlaut Gyrðir Elíasson Bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 2011.

„MILLI TRJÁNNA er verk samið af höfundi, sem hefur náð fullkomnum tökum á list sinni, liggur mikið á hjarta og kemur því til skila af leiftrandi sköpunargleði… breinn listgaldur.“ – Bergsteinn Sigurðsson, Fréttablaðið

„Helst er ég þó bara á því að Gyrðir sé upp á sitt allra besta í þessari bók. Hún er hreinasta gersemi.“ – Þröstur Helgason, Víðsjá

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2009

Form

Kilja

Blaðsíður

270

Ástand

notuð