Availability: Á lager

Ilmurinn – saga af morðingja

Höfundur: Patrick Süskind
SKU: SKLD0ILM

1.290 kr.

„Á átjándu öld var uppi á Frakklandi maður sem var í hópi allra snjöllustu og andstyggilegustu einstaklinga sinnar aldar, og það þótt hún væri annars engan veginn fátæk af snjöllum og andstyggilegum einstaklingum. Það er saga hans sem hér verður sögð.“

Þannig hefst sagan um Jean-Baptiste Grenouille sem fæðist undir blóðugu fisksöluborði í París. Nöturleg koma hans í heiminn er þó aðeins upphafið að furðulegu lífshlaupi þessa grimma og einstæða snillings. Á annan bóginn er hann gæddur yfirskilvitlegu lyktarskyni – á hinn bóginn ber hann enga líkamslykt sjálfur.

Eftir ömurlega og einangraða æsku – útskúfaður úr mannlegu samfélagi – kemst hann í kynni við ilmvatnsgerðarmeistara og nær brátt undraverðum árangri í þeirri list. Einkum verður hann hugfanginn af þeirri lykt sem vinna má úr mannslíkamanum. Hann einsetur sér að endurskapa ilminn sem ungar meyjar bera til að vinna sjálfur ást og hylli. Til þess þarf hann að myrða þær. En hvernig samrýmist slíkur glæpur drauminum um ástina?
Ilmurinn – saga af morðingja, vakti heimsathygli þegar hún kom fyrst út á þýsku og hefur verið þýdd á meira en þrjátíu tungumál enda er hér á ferðinni eitt sérstæðasta og stórbrotnasta bókmenntaverk seinni tíma. Ilmurinn er jafnframt einstök spennusaga og hefur rofið múrinn milli spennusagna og fagurbókmennta og setið í efsta sæti á metsölulistum um allan heim.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1987

Þýðandi

Titill á frummáli

Das Parfum, die Geschichte eines Mörders

Form

Innbundin

Blaðsíður

180

Ástand

notuð