Availability: Á lager

Bernskubók

Höfundur: Sigurður Pálsson
SKU: SKLD0BERN

1.290 kr.

Bernskubók byggir Sigurður Pálsson á bernskuárum sínum í Norður-Þingeyjarsýslu en þar bjó hann frá fæðingu til fjórtán ára aldurs þegar hann hóf hefðbundið skólanám í landsprófsdeild Hagaskólans.

Í Bernskubók teflir Sigurður fram lifandi fortíðarmyndum sem hafa mótað hann sem einstakling frá frumbernsku, lýsir því hvernig skilningarvitin vakna, hvernig barnið nemur og skynjar umhverfi sitt, fjölskyldu og sveitunga, náttúruna, tungumálið; hvernig dýr og menn og almættið sjálft leika hlutverk sín á leiksviði barnsins.

Bernskubók er endurminningaverk sem byggir á hæfileikum manneskjunnar til að muna, rifja upp minningar, staðfesta tilvist sína með því að segja frá. Og umfram allt með því að skapa texta, því eins og segir á einum stað:
„Sá sem ekki hefur breyst í texta hefur ekki lifað.“

Sigurður Pálsson fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007 fyrir Minnisbók.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2011

Form

Innbundin

Blaðsíður

287

Ástand

notuð