Availability: Á lager

Gegn gangi leiksins

Höfundur: Bragi Ólafsson
SKU: SKLD0GEGN

1.290 kr.

Sjö ár eru liðin frá því ljóðskáldið Svanur Bergmundsson losnaði úr klefa sínum á Litla-Hrauni, eftir að hafa afplánað nokkurra ára dóm fyrir manndráp í miðbæ Reykjavíkur. Lóa, systir Svans, er farin á heimili fyrir aldraða, og hefur sett íbúð sína í Þingholtunum á sölu, en leyfir bróður sínum að búa í henni þangað til hún selst. Á fallegum haustdegi bankar ungt par upp á hjá Svani, og vill skoða íbúðina. Svanur er á því augnabliki að koma sér fyrir til að fylgjast með leik á alþjóðlegu fótboltamóti í sjónvarpinu – en framundan er líka annar leikur, sem Svanur mun sjálfur taka þátt í. Í kjölfar heimsóknar unga parsins fer síðan enn einn boltinn að rúlla …

Bragi Ólafsson hefur frá árinu 1986 gefið út ljóðabækur, smásagnasöfn og skáldsögur auk þess að skrifa leikrit fyrir útvarp og svið, Aðrar skáldsögur hans eru HvíldardagarGæludýrin, Samkvæmisleikir, Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenny Alexson, Fjarveran, Sögumaður og Staða pundsins.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2022

Tungumál

Blaðsíður

157

Form

Innbundin

Ástand

notuð