Availability: Á lager

Vögguvísa

Höfundur: Elías Mar
SKU: SKLD0VOG

990 kr.

Vögguvísa eftir Elías Mar kom fyrst út árið 1950 og er jafnan talin ein fyrsta Reykjavíkursagan. Bókin er einnig sú fyrsta sem gerir unglingamenningu eftirstríðsáranna að viðfangsefni sínu.

Bambínó, aðalpersóna sögunnar, lifir og hrærist í fjölda- og neyslumenningu undir bandarískum áhrifum kvikmynda, tónlistar, tísku og fleira. Þá fangar verkið tíðarandann og heim unglingsins vel þar sem líkt er eftir tungutaki þeirra. Höfundur lagðist í viðamikla rannsóknarvinnu á tungutaki reykvískra unglinga og safnaði saman helstu slangurorðum og orðasamböndum úr máli þeirra.

Safnið birtist í fyrsta sinn í heilu lagi á prenti í þessari útgáfu. Bókin er gefin út í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og var í brennidepli á lestrarhátíð í október 2012.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2012

Kápuhönnun

Form

Kilja

Ástand

notuð