Availability: Á lager

Þú kemst ekki nær

SKU: GUDTHU

6.690 kr.

Þú kemst ekki nær er ljóðræn og marglaga saga um uppvöxt, ást, missi og einsemd. Minningar og smáatriði hversdagsins fléttast saman í áhrifamikla frásögn þar sem húmor og tregi, barnsleg undrun og tilvistarleg þreyta mætast. Sögumaðurinn leiðir lesandann í gegnum ævi sína fulla af ósögðum tilfinningum og hversdagslegum ævintýrum.

Þetta er saga um að rata eða týnast í sjálfu lífinu. Saga um að elska, missa, hlæja og þegja. Fjölskyldan birtist í allri sinni ófullkomnu fegurð og tilvera sögumannsins verður að spegli okkar eigin sögu. Við kynnumst fyrstu ástinni og leyndu sambandi sem logar á jaðri þess leyfilega. Í gegnum brotakenndar minningar af móður, systur, afa, ömmu og síðar eiginkonu sinni, birtist ævi sögumans þar sem hann leitar að tengslum, festu og merkingu í síbreytilegum heimi.

Með næmu auga fyrir hversdagslegri fegurð og óstöðugleika tilverunnar dregur höfundur upp myndrænan, hlýjan og líflegan heim þar sem hlátur og sorg búa hlið við hlið. Frásögnin einkennist af innsæi, djúpum skilningi á mannlegu eðli og stílfærðri notkun smáatriða sem öðlast líf og merkingu langt umfram eigið vægi.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2025

Tungumál

Form

Innbundin