1. nóvember 2025
Verið velkomin að fagna vínilútgáfu plötunnar Mansöngvar í bókabúðinni Skáldu við Vesturgötu. Í innri salnum í búðinni er píanó, ég ætla að byrja á því að syngja og spila nokkur lög af plötunni. Síðan ætlum við Elísabet Indra Ragnarsdóttir að spjalla um plötuna í smástund. Að því búnu verður henni brugðið undir nálina.
Það verða veitingar í boði. Platan Mansöngvar verður til sölu.
Í lokin er ég að hugsa um að setjast aðeins við píanóið aftur og syngja nokkur lög af plötunni Svarthvít jól. Ekki af því að hún sé til sölu neins staðar heldur bara af því að mig langar til þess.
Hlekkur á plötuna Mansönvar er hér:
https://mansongvar.lnk.to/Listen
https://mansongvar.lnk.to/Listen
Jón Hallur Stefánsson

