Availability: Á lager

Karitas án titils

SKU: SKLD0KARIT

1.290 kr.

Karitas án titils er dramatísk og áhrifamikil örlagasaga ungrar stúlku í upphafi 20. aldar, saga um drauma og þrár, óvænta hamingju, óbærilega sorg og miklar ástríður. Um leið er af einstöku innsæi brugðið upp mynd af lífi og hlutskipti kvenna fyrr og síðar.

Karitas Jónsdóttir elst upp í stórum hópi föðurlausra systkina. Móðir þeirra vill koma þeim öllum til mennta og þau þurfa að leggja hart að sér. En Karitas er margt til lista lagt og hana dreymir um öðruvísi tilveru. Fyrir tilviljun kynnist hún óvenjulegri konu með trönur og upp frá því tekur líf hennar að hverfast æ meir um tvö máttugustu öfl tilverunnar, listina og ástina.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2004

Tungumál

Kápuhönnun

Form

Innbundin

Ástand

notuð