Availability: Uppselt

Blandað í svartan dauðann

1.290 kr.

STEINAR SIGURJÓNSSON er Snæfellingur að uppruna, fæddur á Hellissandi 1928. Ólst hann þar upp til átta ára aldurs, en síðan á Akranesi, þar sem hann átti heima fram til 1952. Fluttist hann þá til Reykjavíkur og hefur verið búsettur þar síðan. Hann nam prentun og stundaði hana um skeið, en hefur þess utan gert sér jafnólík störf að atvinnu sem sjómennsku og hljóðfæraleik. Frá öndverðu hefur samt hugur hans hneigzt framar öðru að ritstörfum og skáldskap. Hafa þegar komið frá hans hendi fjórar skáldsögur, auk einnar ljóðabókar, og hafa þær allar vakið athygli ritdómenda fyrir sérstæðan stíl og djarflegt efnisval.

BLANDAÐ Í SVARTAN DAUÐANN þræðir ekki troðnar slóðir fremur en fyrri skáldsögur höfundarins. Hún gerist reyndar á góðkunnu sögusviði, sem nánar til tekið er Akranes, en fjallar allt að einu um mannlíf og um. verfi, sem sjaldnast blasir við almennings sjónum, af því að vettvangur þess liggur í raun utan garðs í samfélaginu. En einnig þar virðist höfundurinn vera öllum hnútum kunnugur og „þekkja sitt heimafólk.“ Þetta er ekki tiitakanlega,,fagurt mannlíf”, og margar lýsingarnar virðast ærið umbúðalausar, en nærfærinn skilningur höfundarins sér fyrir því, að lesandinn snýr að lokum ríkari af samúð frá þessum dimmleita heimi, þar sem hver maður kemur til dyra eins og hann er klæddur og naktar ástríður lýsa í myrkrinu eins og maurildi.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1967

Form

Innbundin

Blaðsíður

153

Ástand

notuð